• Menu
  • Skip to right header navigation
  • Skip to main content
  • Skip to secondary navigation
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Before Header

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone

Netpartar lógó

Umhverfisvæn Endurvinnsla Bílaparta

  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

Mobile Menu

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone
  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

Samfélagsábyrgð

Einkunnarorð Netparta – Umhverfisvæn endurvinnsla bifreiða

Netpartar er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki og leggur áherslu á umhverfis- og gæðastjórnun í starfsemi sinni. Við vinnum að því að hámarka umhverfisvæna endurvinnslu og nýtingu á öllu hráefni úr bifreiðum sem komnar eru úr notkun. Þannig gegnum við hlutverki í hringrásarhagkerfsinu með því að viðhalda verðmæti vara, efna og auðlinda eins lengi og mögulegt er og stuðlum að minni sóun, betra umhverfi og loftslagi.

Netpartar er þjónustuaðili fyrir Úrvinnslusjóð og hefur fengið umhverfisvottun samkvæmt ISO 14001:2015 staðlinum. Netpartar hafa því skuldbundið sig til þess að fara eftir bæði lagalegum og öðrum kröfum hagsmunaaðila er varða umhverfismál. Við höfum gefið út gæða- og umhverfisstefnu í þeim tilgangi að efla gagnsæi um starfsemina og auka gæði þjónustu með áherslu á ánægju viðskiptavina.

Umhverfisáhrif og samspil fyrirtækisins við sitt nær- og fjærumhverfi eru ætíð höfð að leiðarljósi, þar sem leitast er eftir því að koma auga á umhverfisþætti sem snerta starfsemi fyrirtækisins, bregðast við þeim og þannig minnka mengun og mengunarhættu.

Við leggjum áherslu á öryggi, heilbrigði og almenna velferð starfsmanna okkar og að þeir séu meðvitaðir um stefnu fyrirtækisins. Samkvæmt gæðastefnu Netparta, fær starfsfólk reglubundna þjálfun þannig að það sé hæft til þess að takast á við þau verkefni sem þarf að sinna hverju sinni. Netpartar hafa hlotið vottun BSI á Íslandi samkvæmt kröfum BGS staðals 5.0:2013.

Primary Sidebar

Það nýjasta

  • Alor og Netpartar: endurnýting á rafbílarafhlöðum fyrir umhverfisvænni rafstöðvar
  • Getum við sloppið við förgun?
  • Netpartar hljóta Umhverfisverðlaun Árborgar árið 2023
  • VÍS og Netpartar stytta biðtíma eftir varahlutum  
  • Get ég komið með bílinn minn til Netparta og selt hann í varahluti?
Netpartar - framúrskarandi fyrirtæki 2020

Footer

Netpartar

Byggðarhorni 38
801 Selfoss
netpartar@netpartar.is
kt: 610696-2529
Sími: 486 44 99
Lokað

  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Við sendum varahluti um allt land

Nánar um fyrirkomulag afgreiðslu vegna Covid

1 Map
  • Um fyrirtækið
  • Hafa samband
  • Vafrakökur

Copyright © 2025 Netpartar ehf

Við notum vafrakökur (namm kökur) svo upplifun þín á vefnum okkar verði sem best. Ef þú heldur áfram að skoða vefinn gerum við ráð fyrir því að þér finnist það í lagi.SamþykkjaUm Vafrakökur