• Menu
  • Skip to right header navigation
  • Skip to main content
  • Skip to secondary navigation
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Before Header

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone

Netpartar lógó

Umhverfisvæn Endurvinnsla Bílaparta

  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

Mobile Menu

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone
  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

Alor og Netpartar: endurnýting á rafbílarafhlöðum fyrir umhverfisvænni rafstöðvar

29.02.2024 //  by Netpartar .

Nýsköpunarfyrirtækið Alor, sem sérhæfir sig í rafhlöðurannsóknum og þróun þeirra og Netpartar, hafa gert með sér samkomulag um endurnýtingu á notuðum rafbílarafhlöðum. Um er að ræða verkefni í tengslum við tveggja ára rannsóknarverkefni Alor sem snýr að því að nýta rafhlöðurnar til að útfæra svokallaðar blendingsrafstöðvar (e. hybrid) sem eru knúnar af jarðefnaeldsneyti og tengdar endurnýttum rafbílarafhlöðum til að minnka eldsneytisnotkunina.

Við blendingsrafstöðina má tengja sólarsellur og litlar vindtúrbínur og þar með framleiða rafmagn með sjálfbærari og hagkvæmari hætti. Kerfið mun nýtast öllum sem reiða sig á jarðefnaknúnar rafstöðvar, s.s. sem varaafl. Eftir því sem komist verður næst er um að ræða einstakt verkefni á heimsvísu þar sem ekki fæst séð að rafbílarafhlöður sem hafa fengið  framhaldslíf hafi verið nýttar í þessum tilgangi áður.

“Flestar varaflsstöðvar hér á landi eru eingöngu knúnar af olíu en með því að bæta rafhlöðum við þær er hægt að minnka olíunotkun sem hjálpar til við að ná markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsaloftegunda.” segir Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastýra Alor. „Sérfræðingum ber saman um að rafhlöður séu lykillinn að orkuskiptunum og fyrirséð að þörf á þeim muni aukast gríðarlega, en við getum lengt líftíma rafbílarafhlaðna um að minnsta kosti tíu ár með endurnýtingu þeirra. Það er ekki einfalt að nálgast notaðar rafbílarafhlöður og því fögnum við samstarfinu við Netparta sem flýtir fyrir verkefninu.“

Netpartar hafa um árabil tekið á móti og geymt notaðar rafbílarafhlöður.  Netpartar tóku þátt í norræna rannsóknaverkefninu PROACTIVE sem sneri að því að efla leiðbeiningar um meðhöndlun og geymslu rafbílarafhlaðna eftir að líftíma þeirra lýkur.

„Mikið af orku má enn geyma í rafbílarafhlöðu þú hún geti ekki lengur þjónustað rafbílinn, auk þess þá inniheldur hún fágæta og verðmæta málma.“, segir Aðalheiður Jacobsen, framkvæmdastjóri Netparta. „Áætlað er að á árinu 2030 muni falla til 12 milljón tonn af notuðum rafbílarafhlöðum og því er afskaplega aðkallandi að finna hráefninu farveg hér innanlands og sporna gegn sóun og útflutningi úr landi með tilheyrandi kolefnisspori. Við erum stolt af því að geta lagt okkar af mörkum í þetta mikilvæga verkefni sem fellur vel að áherslum hringrásarhagkerfis og styður við orkuskiptin.“

Rannsóknarverkefninu er stýrt af Rúnari Unnþórssyni, tæknistjóra Alor og prófessor við Háskóla Íslands. Verkefnið er unnið í samstarfi við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands.  Alor hefur hlotið  tæplega 100 milljónir króna í styrki til verkefnisins frá Tækniþróunarsjóði, Nýsköpunarsjóði námsmanna, Orkusjóði, Loftlagssjóði og Vísindasjóði Orkuveitu Reykjavíkur. Styrkirnir eru dýrmætur stuðningur og hjálpar Alor með að fjármagna verkefnið að fullu.

Flokkur: Fréttir

Previous Post: « Getum við sloppið við förgun?

Primary Sidebar

Það nýjasta

  • Alor og Netpartar: endurnýting á rafbílarafhlöðum fyrir umhverfisvænni rafstöðvar
  • Getum við sloppið við förgun?
  • Netpartar hljóta Umhverfisverðlaun Árborgar árið 2023
  • VÍS og Netpartar stytta biðtíma eftir varahlutum  
  • Get ég komið með bílinn minn til Netparta og selt hann í varahluti?
Netpartar - framúrskarandi fyrirtæki 2020

Footer

Netpartar

Byggðarhorni 38
801 Selfoss
netpartar@netpartar.is
kt: 610696-2529
Sími: 486 44 99
Lokað

  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Við sendum varahluti um allt land

Nánar um fyrirkomulag afgreiðslu vegna Covid

1 Map
  • Um fyrirtækið
  • Hafa samband
  • Vafrakökur

Copyright © 2025 Netpartar ehf