Netpartar ehf. er umhverfisvæn endurvinnsla og verslun með notaða varahluti í bifreiðar. Í starfi Netparta felst öll almenn þjónusta við niðurrif og förgun ökutækja ásamt flokkun og endursölu notaðra varahluta.
Við erum samfélagslega ábyrgt fyrirtæki þar sem umhverfismál og gæði standa okkur mjög nær. Okkar DNA felst í því að endurnýta og endurvinna varahluti og annað efni úr bifreiðum eins mikið og mögulegt er, þannig að sem minnst fari til spillis, heldur verði nýtt aftur í sama hlutverk eða í annað, eins og nýsköpun. Þannig leikum við hlutverk í hringrásarhagkerfinu.
Netpartar hafa rýnt með ábyrgum hætti alla þætti þjónustunnar og það umhverfi sem fyrirtækið starfar í
Í því felst að hafa gæða- og umhverfisstefnu, þar sem ekki er bara yfir umhverfislega kosti þess að endurvinna bifreiðar, heldur einnig hvernig losað sé við spilliefni úr þeim og að öll efni sem fyrirtækið notar til niðurrifs og hreinsunar séu umhverfisvæn. Umhverfisstefna fyrirtækisins tekur einnig á því að koma í veg fyrir óþarfa sóun á t.d. hita, rafmagni og pappír.
Netpartar ehf. hóf starfsemi árið 2009 og eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er Aðalheiður Jacobsen. Fyrirtækið er framúrskarandi fyrirtæki 2019 og 2020 samkvæmt úttekt Creditinfo.
Netpartar ehf.
Byggðarhorni 38, 801 Selfoss
Sími 486-4499
Kt. 610696-2529
Vsk nr. 75824