Opið hús í Netpörtum föstudaginn 18. ágúst frá 14 til 17
Við erum hæstánægð með að núna á dögunum hlutum við hjá Netpörtum Umhverfisverðlaun sveitarfélagsins Árborgar 2023! Dómnefnd kallaði eftir tilnefningum frá íbúum í flokkunum framlag til umhverfismála, fallegasta garðinn, snyrtilegasta fyrirtækið og fallegustu götuna og var Netpartar kosið af dómnefnd fyrir framlag til umhverfismála.
Í tilefni af verðlaununum bjóðum við upp á opið hús fyrir gesti og gangandi á milli klukkan 14 og 17, föstudaginn nk. 18. ágúst. Við hvetjum sem flesta til að mæta!
Í starfi Netparta felst öll almenn þjónusta við umhverfisvænt niðurrif og förgun ökutækja ásamt flokkun og endursölu notaðra varahluta. Netpartar er samfélagslega ábyrgt fyrirtæki þar sem umhverfismál, gæði og rekjanleiki notaðra varahluta er í forgrunni. Netpartar vinnur að því að hámarka umhverfisvæna endurvinnslu og endurnýtingu á öllu hráefni úr bifreiðum sem komnar eru úr notkun sem stuðlar að minni sóun, betra umhverfi og loftslagi. Netpartar hefur fengið umhverfisvottun BSI á Íslandi samkvæmt ISO 14001 staðlinum, eitt fyrirtækja í þessari grein á Íslandi. Þá hefur BSI vottað starfsemi Netparta samkvæmt ISO 9001 gæðastaðlinum fyrir þjónustu bifreiðaverkstæða. Netpartar hefur áður hlotið viðurkenningu Samtaka atvinnulífsins sem framtak ársins 2020 í umhverfismálum.
Netpartar var stofnað árið 2009 og er staðsett rétt fyrir utan Selfoss, að Byggðarhorni 38. Eigandi og framkvæmdastjóri Netparta er Aðalheiður Jacobsen, en hjá fyrirtækinu starfa 8 manns.