Brunavarnir Árnessýslu æfa hjá Netpörtum
Nokkuð reglulega fáum við heimsókn frá vöskum hópi slökkviliðsmanna frá Brunavörnum Árnessýslu sem nýta svæðið og ónýta bíla til að æfa sig á. Slökkvistörf geta verið mjög krefjandi, bæði líkamlega og andlega og verkefnin mjög misjöfn, bæði lítil og stór. Menntun er því fjölbreytt og yfirgripsmikil og snúa m.a. að björgun mannslífa, eigna og umhverfis.
Lárus Kristinn Guðmundsson, varaslökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu hefur verið starfandi slökkviliðsmaður síðan árið 2002, en hann sagði okkur stuttlega frá starfsemi og þjálfun slökkviliðsins og æfingunni sem haldin var á dögunum hjá Netpörtum. Brunavarnir Árnessýslu heldur reglubundna þjálfun í reykköfun, almennu slökkvistarfi, hvernig skuli slökkva eld í skipum, afla vatns og hvernig skuli meðhöndla ef um eiturefni væri að ræða. Þá æfir sveitin björgun við margskonar aðstæður, æfir stigavinnu og margt fleira. Um 60 slökkviliðsmenn hafa sótt æfingar á svæði Netparta síðastliðinn mánuð, en eitt norðurljósakvöld var æfing sem snérist að mestu leyti um æfingar með klippum. „Á klippuæfingum er björgun á fólki úr bílflökum æfð, bæði tækni við björgun úr bílflökum sem og æfingarútköll þar sem líkt er eftir slysi. Í þetta sinn var sérstaklega haft til hliðsjónar ef um rafbíl væri að ræða og farið yfir aðgerðir sem slökkvilið þyrfti að beita í slíkum tilfellum.“, segir Lárus.
En hvernig fer svona æfing fram? „Á slíkum æfingum er sett upp dagskrá fyrirfram sem farið er yfir með liðinu. Við förum yfir tæknileg atriði, hættur og öryggismál. Þá æfum við mismunandi aðferðir og síðan er keyrt út æfingarútkall þar sem líkt er eftir raunverulegum aðstæðum.“ Lárus segir að svona æfingar séu mjög mikilvægar fyrir slökkviliðsmenn til að tryggja hraða og örugga björgun á þeim sem lenda í slysum. „Því miður verða slys þar sem beita þarf björgunarbúnaði til að bjarga fólki úr bílflökum sem og öðrum aðstæðum. Því er mjög mikilvægt að halda reglulega æfingar fyrir björgun á fastklemmdu fólki, hvort sem er til að ná fólk úr bílflökum eða undan öðru fargi, t.d. húshlutum eða öðru.“ Brunavörnum Árnessýslu starfa um 130 manns í heilu starfi eða hlutastarfi sem þjónusta alla sýsluna, en einnig eru samningar við nágrannaslökkvilið um gagnkvæma aðstoð ef á þarf að halda.
Lárus segir að búnaður slökkviliða verði sífellt betri, einnig þjálfun og menntun sem leiðir til meiri fagmennsku í starfinu. „Svona æfingar eru gríðarlega mikilvægar til að viðhalda þjálfun hjá liðinu, þar sem hætturnar eru alltaf að aukast og þeim að fjölga að sama skapi. Bæði eru aflgjafar bíla breyttir frá því að vera bara bensín og dísel og eldar í húsum geta farið hraðar um þar sem mikið er af gerviefni í nærumhverfi okkar.“
Kíkið á heimasíðu Brunavarna Árnessýslu til að fræðast meira um starfsemina babubabu.is