• Menu
  • Skip to right header navigation
  • Skip to main content
  • Skip to secondary navigation
  • Skip to primary sidebar
  • Skip to footer

Before Header

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone

Netpartar lógó

Umhverfisvæn Endurvinnsla Bílaparta

  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

Mobile Menu

  • Facebook
  • Instagram
  • Phone
  • Samfélagsábyrgð
    • Gæðavottun
    • Umhverfisvottun
    • Að endurvinna bíl
  • Um okkur
    • Fréttir & Fróðleikur
    • Starfsfólk
  • Varahlutir
    • Verðskrá
    • Ástand Varahluta
    • Afhending varahluta
    • Skilmálar
  • Hafa samband
  • Viltu vinna með okkur?

VÍS og Netpartar stytta biðtíma eftir varahlutum  

07.07.2023 //  by Netpartar .

Nýtt og umhverfisvænt samstarf um að efla notkun og framboð á notuðum varahlutum.

VÍS hefur hafið samstarf við Netparta, sem er umhverfisvæn endurvinnsla bifreiða, til þess auka framboð varahluta í bílaviðgerðum. Mikil bið hefur verið eftir nýjum varahlutum undanfarna mánuði, sem er ekki einungis vandamál hér á landi heldur víða um heim. Með þessu vill VÍS stytta biðtíma fyrir viðskiptavini sína eftir varahlutum, en einnig leggja sitt af mörkum í þágu hringrásarhagkerfisins og minnka kolefnissporið í bílaviðgerðum. Eingöngu verða notaðir bílavarahlutir frá Netpörtu, sem eru jafnmgamlir eða yngri en viðgerðarbíllinn, og hafa hlotið viðeigandi meðhöndlun samkvæmt ISO umhverfis- og gæðavottun. 

Samstarf VÍS og Netparta felst í kaupum á nýlegum tjónabílum til niðurrifs til þess að auka framboð af notuðum varahlutum. Netpartar hafa þegar fengið 45 bíla í niðurrif sem gefa af sér um 10.000 varahluti. Notaðir varahlutir hafa verið nýttir við bílaviðgerðir til margra ára hér á landi, en undanfarin 30 ár hefur VÍS selt um 1.000 tjónaða bíla á ári þar sem bílarnir eru ýmist lagfærðir eða bútaðir í sundur til þess að gefa varahlutum framhaldslíf.    

Með þessu samstarfi er ætlunin að fara að dæmi tryggingafélaga á Norðurlöndunum sem hafa einblínt á að auka og mæla notkun notaðra varahluta í þágu hringrásarhagkerfisins og minna kolefnisspors og ekki síst styttri biðtíma eftir hlutum. Áætluð notkun notaðra varahluta hér á landi í bílaviðgerðum er um 2% á meðan hlutfallið er um 15% í Svíþjóð. Eitt af sjálfbærnimarkmiðum VÍS er að auka notkun hlutfall notaðra varahluta í bílaviðgerðum. 

Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS:

„Við erum svakalega stolt af þessu samstarfi, en í Svíþjóð til að mynda hefur samstarf tryggingafélaga og partasala lengi verið þekkt. Framboð varahluta hér á landi hefur verið ábótavant sem hefur þýtt lengri biðtíma í bílaviðgerðum hjá viðskiptavinum okkar. Með þessu samstarfi erum við að bæta þjónustu og stytta biðtíma, en á sama tíma að hugsa vel um umhverfið okkar. Við erum stolt af því að hafa farið þessa leið, en við vonum að sjálfsögðu að hin tryggingafélögin fylgi okkar góða fordæmi. Aðalheiður og hennar fólk hjá Netpörtum hafa verið að gera frábæra hluti og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.“   

Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta:   „Notkun á notuðum varahlutum á Íslandi hefur verið sláandi lítil miðað við það sem við sjáum frá Svíþjóð. Með því að efla gagnsæi og traust um notaða varahluti sem og auka framboðið á þeim verður bæði sjálfsagðara og einfaldara að velja þann kost umfram nýjan. Við erum hæstánægð með samstarfið við VÍS, en það styður við sjálfbærni og eykur hlutfall notaðra varahluta í viðgerðum, sem er mjög jákvætt. Sífellt erfiðara er að fá varahluti til landsins og það er betra fyrir umhverfið að nýta þær auðlindir sem við höfum aðgang að hér heima. Í þessu skyni höfum við líka opnað vefverslun með notaða varahluti til að bæta aðgengi og afgreiðslu þeirra. Þetta ýtir undir að þeir séu raunverulegur valkostur þegar kemur að bílaviðgerðum.”  

Flokkur: Fréttir

Previous Post: « Get ég komið með bílinn minn til Netparta og selt hann í varahluti?
Next Post: Netpartar hljóta Umhverfisverðlaun Árborgar árið 2023 »

Primary Sidebar

Það nýjasta

  • Alor og Netpartar: endurnýting á rafbílarafhlöðum fyrir umhverfisvænni rafstöðvar
  • Getum við sloppið við förgun?
  • Netpartar hljóta Umhverfisverðlaun Árborgar árið 2023
  • VÍS og Netpartar stytta biðtíma eftir varahlutum  
  • Get ég komið með bílinn minn til Netparta og selt hann í varahluti?
Netpartar - framúrskarandi fyrirtæki 2020

Footer

Netpartar

Byggðarhorni 38
801 Selfoss
netpartar@netpartar.is
kt: 610696-2529
Sími: 486 44 99
Lokað

  • Facebook
  • Instagram
  • YouTube

Við sendum varahluti um allt land

Nánar um fyrirkomulag afgreiðslu vegna Covid

1 Map
  • Um fyrirtækið
  • Hafa samband
  • Vafrakökur

Copyright © 2025 Netpartar ehf

Við notum vafrakökur (namm kökur) svo upplifun þín á vefnum okkar verði sem best. Ef þú heldur áfram að skoða vefinn gerum við ráð fyrir því að þér finnist það í lagi.