Netpartar hefur undanfarin ár hlotið vottun BSI á Íslandi á þjónustu sína skv. BGS gæðastaðli 5.0 2013. Eftir nýja úttekt BSI hefur þessi vottun verið uppfærð samkvæmt nýjasta staðli um gæðastjórnunarkerfi ISO 9001. Staðallinn setur fram kröfur á gæðastjórnunarkerfi fyrirtækisins og er því öflugt verkfæri til að ná enn betri rekstrarlegum árangri á hagkvæman og skilvirkan hátt. Þá er tilgangurinn að auka gæði þjónustu og ná stöðugum umbótum til að mæta kröfum og væntingum viðskiptavina.
Ávinningur fyrirtækisins er helstur sá að vinnuferli á verkstæði verða markvissari og rekjanleiki varahluta er tryggður. Reglubundið innra og ytra eftirlit er með starfseminni sem tryggir markvissar úrbætur á því sem betur má fara. Fyrirtækið verður sýnilegra og ánægja með þjónustu eykst og markviss þjálfun starfsmanna eykur á starfsánægju þeirra. Þá erum við komin með tvær ISO vottanir, en við höfum hlotið vottun á umhverfisstjórnunarkerfi skv. ISO 14001 frá árinu 2016.